|
Föstudagur, 28 Nóvember 2008 |
Ekki að þetta sé rétt lausn en allavegana fyrsta myndin sem tókst að fá í mastersverkefninu,
llookkssiinnss. Við (ég og Haukur) erum búnir að vera að hjakkast niðri í skóla að reyna að fá eitthvað
til að gerast en hefur ekkert gengið hingað til. Vonumst til þess að nú verði hugsanlega breyting á.
Á meðan við fáum flottar myndir þá erum við allavegana sáttir.
|
|
Mánudagur, 24 Nóvember 2008 |
Var eitthvað að hanga á netinu í OpenFOAM tímanum í dag og rakst á þennan.
Þessi gaur er verkfræðingur og er í stuttu máli að fjalla um spurningar/verkefni sem hann hefur fengið
í atvinnuviðtölum.
Þetta minnti mig á það þegar ég og Haukur fórum í viðtal fyrir mastersverkefni
hjá fyrirtæki hér í Svíþjóð. Við vildum vinna verkefnið saman en samt vildu þeir fá
okkur í viðtal í sitthvoru lagi. Haukur mætti á undan í viðtalið og tók það tæpann klukkutíma,
það endaði síðan með því að hann fékk verkefni sem hann átti að leysa.
Verkefnið var það erfitt að ég veit ekki enn hvernig á að leysa það:D.
Ég var svo heppinn vera eftir hádegi í viðtalinu og þá voru þeir búnir að átta
sig á því að þetta "dæmi" hefði kannski verið aðeins of erfitt og fékk spurningu sem var
margfalt auðveldar. Þarf semsagt að fara að lesa mér til um hvernig maður á að snúa sér útúr
erfiðum atvinnuvitals-dæmum, jah annaðhvort það eða senda bara alltaf Hauk á undan.
Hér er annars skítkalt úti, meira að segja Páll er farinn að kvarta( kannski af því hann notar ekki úlpu).
Var að koma úr hraðbankanum, er að reyna að mjatla út peninginn minn á því frábæra gengi 17.3 áður
en íslenska krónan fuðrar upp.
Hef verið að hlusta á nýja diskinn með the killers, á eftir að hlusta meira á þá héðanífrá.
|
|
Fimmtudagur, 20 Nóvember 2008 |
Búin að vera gúrkutíð í blogginu. Læt undan gífurlegum þrýstingi og skrifa nokkur orð.
Lífið gengur hér í Svíþjóð. Svíjar hafa mikinn húmor fyrir kreppuvandræðum Íslendinga og meira
að segja prófessorarnir eru að skjóta á okkur.
Annars kannast ég ekki við neina kreppu og lifi einsog kóngur á námslánunum mínum. ---
Að öðru, ég er núna í einum kúrs og að gera mastersverkefni. Verkefnið á að vera 50% vinna á
móti kúrsinum (en er í raun svona 99%). Verkefnið snýst um að "optimiza" yfirborðshluta af bíl
m.t.t. loftmótstöðu + fleirri þátta með ákveðinni aðferð, mjög spennandi. Ég er í verkefninu með
Hauki, þannig að við sitjum alla daga uppi í skóla og reynum að átta okkur á þessu.
Það eru ákveðin forréttindi sem fylgja því að verabyrjaður á verkefni, þar má helst nefna
ókeypis kaffi og að við fáum borgað fyrir það.
Kúrsinn sem ég er í snýst annars um að læra að nota open source straumfræðiforrit sem heitir
openfoam og er ókeypis á netinu(alvöru ókeypis), linkur(fyrir þá fjölmörgu sem hafa áhuga),
(það á víst að vera hægt að nota þetta í fjármálaútreikninga líka).
Svona "opin" forrit eru töluvert "inn" í dag og ég eyddi 2 dögum í að reyna að koma þessu forriti
í gang á tölvunni minni um daginn (maður fær víst það sem maður borgar fyrir).
Anna í kína er annars komin með blogg.
Síðan rakst ég á bloggið hans drgunna um daginn, skemmtilegur náungi.
Farinn að sofa - Openfoam frá 9-5 á morgun.
|
|
Laugardagur, 20 September 2008 |
Við höfum ekki verið mikið að blanda okkur í hina sænsku menningu en ákváðum í dag reyna að
aðlagast aðeins betur og kíkja á íshokkíleik. Frölunda Indians gegn Linköpings HC.
Það var góð mæting hjá Íslendingunum, vorum 11 með Önnu Möggu (sem er í heimsókn og á Evróputúr)
og svo kom Tobbe líka með. Við lentum reyndar í því að mæta örlítið of seint,
Linköpings voru búnir að skora 2 mörk þegar við mættum. Við vorum ekki alveg með reglurnar á
hreinu en Tobbe reyndi að útskýra þetta aðeins fyrir okkur.
Þetta var ágætis skemmtun þó mörkin hafi ekki verið mörg,
Frölunda skoruðu 1 í síðasta leikhluta (Frölunda er frá Gautaborg), lokastaðan 1-2.
|
|
Fimmtudagur, 18 September 2008 |
Langt síðan eitthvað kom hér inn, ef undanskilið er þegar einhver jóli hakkaði síðuna.
Ég er annars búinn að ganga Hornstrandir (set inn myndir fljótlega, ættu að vera á facebook samt) og kominn aftur til Gautaborgar.
Byrjaði að kaupa mér nýja tölvu, keypti Sony :D Hingað til hefur hún gengið ágætlega, þó vistað sé alltaf með smá bögg en sweet að
hafa svona stórann skjá með ágætis upplausn.
Helst í fréttum er annars að ég og Haukur vorum að fá mastersverkefni í dag. Snilld. Ég var búinn að
gera ráð fyrir því að taka kúrsa fyrir áramót og byrja ekki á verkefni fyrr en eftir áramót. Mér og Hauki var svo boðið
spennandi verkefni á mánudaginn og því verðum við 50% í verkefninu og 50% í kúrsum fyrir áramót (við týmdum
ekki að sleppa alveg kúrsunum) og svo bara verkefni eftir áramót. Verkefnið snýst í meginatriðum um að finna aðferð til þess að lágmarka lyfti
og drag stuðla yfir teikningu, t.d. hluta bíls, og breyta svo útliti hans lítillega og reikna stuðlana aftur og búa þannig til margar útfærslur
og finna "optimal" útlit.
Nokkrar myndir úr gönguferðum sumarsins.
|
|
<< Byrja < Fyrra 1 2 3 4 5 Næsta > Endir >>
|
|
Síða 1 af 5 |