|
Búinn að læra töluvert í vikunni enda bara rúm vika í próf. Mér finnst ég ekkert vita hvað kemur á þessum prófum. Í öðrum kúrsinum erum við búin að gera 3 matlab verkefni og það hafa ekki verið nein dæmi. Kennarinn ætlar að setja eitthvað sýnipróf á netið sem á að skýra þetta eitthvað. Finnu vinur hans Jóa kíkti í heimsókn og fór hann með okkur í gærkvöldi. Fórum í partý til Tobba. Ætluðum reyndar bara að fá okkur 1-2 bjóra en þetta var fínt partý og þeir urðu aðeins fleirri. Kynntumst nokkrum Svíjavinum hans Tobba, þeir voru annars nokkuð hressir og kíkti hluti af þeim með okkur niður í bæ. Páll, Jói og Finnur fóru reyndar beint heim úr bænum en ég, Haukur og nokkrir Svíjar stöldruðum aðeins við. Ég er því ekkert búinn að læra í dag, var aðeins þreyttur í hausnum í morgun. Það hefur annars kólnað aðeins og fer niður fyrir frostmark á næturnar. Svíjarnir eru líka allir í sparnaðinum og hita ekkert húsin okkar. Ofnarnir hitna aðeins hjá mér en hjá Jóa og Palla hitna þeir ekki neitt. Ég og Jói erum því bara með kerti til að hita herbergin okkar. Svíjarnir eru mjög umhverfisvænir og strákarnir sögðu okkur í gær að vatnið sem við drekkum úr krananum væri að hluta til endurrunnið úr klósettinu og hluta til úr sjónum og ætli einhver hluti sé ekki ferskt vatn. Ég sem var svo ánægður með bragðið af vatninu hér (einsog heima) svo kemur í ljós að þetta er sjávarkúkavatn sem bragðast svona vel. Ég ætla að skella hérna einu partý lagi sem Dj Haukur skellir á fóninn þegar við erum orðnir þreyttir á lærdómnum og þurfum að koma okkur í lærdómsgírinn.
Jói er ekki sammála okkur, setur frekar á sig headphona og hlustar á Radiohead.
|