| Mánudagur, 24 Nóvember 2008 | |||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
Var eitthvað að hanga á netinu í OpenFOAM tímanum í dag og rakst á þennan. Þessi gaur er verkfræðingur og er í stuttu máli að fjalla um spurningar/verkefni sem hann hefur fengið í atvinnuviðtölum. Þetta minnti mig á það þegar ég og Haukur fórum í viðtal fyrir mastersverkefni hjá fyrirtæki hér í Svíþjóð. Við vildum vinna verkefnið saman en samt vildu þeir fá okkur í viðtal í sitthvoru lagi. Haukur mætti á undan í viðtalið og tók það tæpann klukkutíma, það endaði síðan með því að hann fékk verkefni sem hann átti að leysa. Verkefnið var það erfitt að ég veit ekki enn hvernig á að leysa það:D. Ég var svo heppinn vera eftir hádegi í viðtalinu og þá voru þeir búnir að átta sig á því að þetta "dæmi" hefði kannski verið aðeins of erfitt og fékk spurningu sem var margfalt auðveldar. Þarf semsagt að fara að lesa mér til um hvernig maður á að snúa sér útúr erfiðum atvinnuvitals-dæmum, jah annaðhvort það eða senda bara alltaf Hauk á undan. Hér er annars skítkalt úti, meira að segja Páll er farinn að kvarta( kannski af því hann notar ekki úlpu). Var að koma úr hraðbankanum, er að reyna að mjatla út peninginn minn á því frábæra gengi 17.3 áður en íslenska krónan fuðrar upp. Hef verið að hlusta á nýja diskinn með the killers, á eftir að hlusta meira á þá héðanífrá.
Powered by !JoomlaComment 3.26
3.26 Copyright (C) 2008 Compojoom.com / Copyright (C) 2007 Alain Georgette / Copyright (C) 2006 Frantisek Hliva. All rights reserved." |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||