Föstudagur, 20 Júní 2008
17. júní fór friðsamlega fram. Ég, Haukur Már, Hrönn, Svenni og Eyrún löbbuðum inn Reykjadal, stutt frá Hveragerði.
Ég hélt ég hefði tekið nokkrar myndir en einu myndirnar sem voru á myndavélinni minni
eru af honum Svenna, set þær hér með.


Sjáum hér að Svenni er enn sólbrunnin eftir Heklugönguna og því um að gera að smyrja sig vel með sólarolíu.
Ég var reyndar líka töluvert brunninn en það sést ekki hér.
Á myndinn má líka sjá að það er gott veður og svo kaggann hennar Hrannar þarna vinstramegin.


Svenni og Eyrún. Hér erum við komin inn að skála, sem var það lengsta sem við gengum.
Niðri í dalnum enduðum við svo á að skella okkur út í heitann læk sem rennur um dalinn.
Ef horft er yfir vinstri öxlina á Svenna má sjá beygjuna í Kömbunum.

Við enduðum svo á smá rölti um Hveragerði og fengum okkur pizzu og bjór.
Þetta var fín tilbreyting frá hefðbundum 17. júní.
 
Fimmtudagur, 19 Júní 2008
Ég, Haukur, Hrönn og Svenni skelltum okkur uppá Heklu um helgina.
Mjög skemmtileg ganga og frábært veður. Eiginlega of gott því við brunnum öll, ég og Svenni þó mest.
Myndir
Hérna er ein mynd af göngugörpunum á leiðinni í Þjórsárdalslaug þangað sem við fórum í sund eftir gönguna.
 
<< Byrja < Fyrra 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>

Síða 4 af 24