Fimmtudagur, 18 September 2008
Langt síðan eitthvað kom hér inn, ef undanskilið er þegar einhver jóli hakkaði síðuna.
Ég er annars búinn að ganga Hornstrandir (set inn myndir fljótlega, ættu að vera á facebook samt) og kominn aftur til Gautaborgar.
Byrjaði að kaupa mér nýja tölvu, keypti Sony :D  Hingað til hefur hún gengið ágætlega, þó vistað sé alltaf með smá bögg en sweet að
hafa svona stórann skjá með ágætis upplausn.

Helst í fréttum er annars að ég og Haukur vorum að fá mastersverkefni í dag. Snilld. Ég var búinn að
gera ráð fyrir því að taka kúrsa fyrir áramót og byrja ekki á verkefni fyrr en eftir áramót. Mér og Hauki var svo boðið
spennandi verkefni á mánudaginn og því verðum við 50% í verkefninu og 50% í kúrsum fyrir áramót (við týmdum
ekki að sleppa alveg kúrsunum) og svo bara verkefni eftir áramót. Verkefnið snýst í meginatriðum um að finna aðferð til þess að lágmarka lyfti
og drag stuðla yfir teikningu, t.d. hluta bíls, og breyta svo útliti hans lítillega og reikna stuðlana aftur og búa þannig til margar útfærslur
og finna "optimal" útlit.

Nokkrar myndir úr gönguferðum sumarsins.

Hekla - 15. júní Vífilfell- 20. júní
Hengill - í brjáluðu veðri - 20. júlí Hornstrandir - 2. ágúst
 


 
Föstudagur, 18 Júlí 2008

Búinn að vera veikur nánast alla vikuna. Kominn með legusár.
                                     


Er kominn með plan fyrir Verslunarmannahelgina, ganga frá Hornvík til Aðalvíkur.

Síðast þegar ég vissi voru 18 manns búnir að staðfesta mætingu.
Ef einhver sem les þetta hefur áhuga á að mæta, þá endilega hafa samband.
Ferðaáætlun+meira er annars að finna hér.
 
<< Byrja < Fyrra 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>

Síða 3 af 24