Fimmtudagur, 20 Nóvember 2008
Búin að vera gúrkutíð í blogginu. Læt undan gífurlegum þrýstingi og skrifa nokkur orð.
Lífið gengur hér í Svíþjóð. Svíjar hafa mikinn húmor fyrir kreppuvandræðum Íslendinga og meira
að segja prófessorarnir eru að skjóta á okkur.
Annars kannast ég ekki við neina kreppu og lifi einsog kóngur á námslánunum mínum. ---
Að öðru, ég er núna í einum kúrs og að gera mastersverkefni. Verkefnið á að vera 50% vinna á
móti kúrsinum (en er í raun svona 99%). Verkefnið snýst um að "optimiza" yfirborðshluta af bíl
m.t.t. loftmótstöðu + fleirri þátta með ákveðinni aðferð, mjög spennandi. Ég er í verkefninu með
Hauki, þannig að við sitjum alla daga uppi í skóla og reynum að átta okkur á þessu.
Það eru ákveðin forréttindi sem fylgja því að verabyrjaður á verkefni, þar má helst nefna
ókeypis kaffi og að við fáum borgað fyrir það.
Kúrsinn sem ég er í snýst annars um að læra að nota open source straumfræðiforrit sem heitir
openfoam og er ókeypis á netinu(alvöru ókeypis), linkur(fyrir þá fjölmörgu sem hafa áhuga),
(það á víst að vera hægt að nota þetta í fjármálaútreikninga líka).
Svona "opin" forrit eru töluvert "inn" í dag og ég eyddi 2 dögum í að reyna að koma þessu forriti
í gang á tölvunni minni um daginn (maður fær víst það sem maður borgar fyrir).

Anna í kína er annars komin með blogg.

Síðan rakst ég á bloggið hans drgunna um daginn, skemmtilegur náungi.

Farinn að sofa - Openfoam frá 9-5 á morgun.


 
Laugardagur, 20 September 2008
Við höfum ekki verið mikið að blanda okkur í hina sænsku menningu en ákváðum í dag reyna að
aðlagast aðeins betur og kíkja á íshokkíleik. Frölunda Indians gegn Linköpings HC.
Það var góð mæting hjá Íslendingunum, vorum 11 með Önnu Möggu (sem er í heimsókn og á Evróputúr)
og svo kom Tobbe líka með. Við lentum reyndar í því að mæta örlítið of seint,
Linköpings voru búnir að skora 2 mörk þegar við mættum. Við vorum ekki alveg með reglurnar á
hreinu en Tobbe reyndi að útskýra þetta aðeins fyrir okkur.
Þetta var ágætis skemmtun þó mörkin hafi ekki verið mörg,
Frölunda skoruðu  1 í síðasta leikhluta (Frölunda er frá Gautaborg), lokastaðan 1-2.



 
<< Byrja < Fyrra 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>

Síða 2 af 24