Nú er skítaveður og ég var að koma úr útihlaupi, það er ekki mörgum sem dettur í hug að fara út að hlaupa í svona skítaveðri nema að sjálfsögðu skokkhópi Íslendinga, að frátöldum honum Hauki sem vildi vera inni. Það virðist annars vera hugsað um nánast allt hérna hjá okkur, það var víst gerð könnun hér í blokkunum, sem ég bý í, um hvað íbúunum fyndist vanta. Jú íbúunum fannst vanta matvöru búð. (Það eru nú alveg tæpar 10 min í næstu búð.) Núna var semsagt að koma tilkynning um að það yrði komið fyrir lítilli matvörubúð í inganginum á einni blokkinni. Hér er fyrir innisundlaug, billiardborð og gufa þannig að þegar búðin er komin þá þarf ég bara ekkert að fara út.
Ég held að það gerist annars ekki mikið hallærislegra en þetta ....
Jæja núnar er ég að verða búinn að klára internetið í annað skiptið í dag. Held þetta sé komið gott. Það er alveg ótrúlegt hvað þetta getur verið mikill tímaþjófur. Var að velta því fyrir mér að sleppa því að nota tölvuna á morgun, svona til þess að sjá hvað gerist. Setti inn sudoku hérna við hliðiná, það er einmitt ágætis tímaþjófur.