|
Miðvikudagur, 13 Febrúar 2008 |
|
Í dag var Charm dagur sem þýðir að skólinn er stútfullur af fyrirtækjum sem eru að kynna sig og leita að starfsfólki ásamt því að nemendur geta reynt að finna mastersverkefni. Ég og Haukur kíktum þangað og hlupum í gegn, fínn staður til að fá penna og ókeypis nammi. Horfði annars um daginn á mynd sem ég mæli með fyrir þá sem vilja vita hvernig á ekki að byggja upp land eftir innrás, hún heitir No End in Sight. Hún er einmitt í 10. sæti yfir bestu heimildamyndirnar skv. imdb. Myndin minnti mig(mmm) svolítið á fína heimasíðu sem alltaf er gott að kíkja á, uncyclopedia.org, þegar maður þarf að vita hvernig hlutirnir eru ekki. Ég var annars að ljúka við ljúffenga sveppasúpu. Hún verður alveg ágæt þegar maður hefur bætt nokkrum auka sveppum við þennan hálfa sem er í pakkanum. Þarf annars að fara að fá fleirri hugmyndir að mat er að verða kominn nokkuð marga hringi með "réttina" sem ég kann. Spurning að halda áfram að lesa í turbulence í kvöld.
|
|
Miðvikudagur, 06 Febrúar 2008 |
|
Ég býst við að margir sem lesa þetta kannist við að fólk skilji ekki um hvað námið þeirra snýst, ég hugsa að þessir nemar í Listaháskólanum eigi líka við þetta "vandamál" að stríða. Ég var annars eitthvað orðinn þreyttur á Firefoxinum mínum um daginn og fann nokkur "trix" til að auka hraðann á honum aðeins. Byrja á að skrifa "about:config" í address barinn. Leita að þessum línum network.http.pipelining network.http.proxy.pipelining network.http.pipelining.maxrequests
Setja fyrri tvær á "true" (tvísmella á línuna) og síðustu á 8. Þegar það er komið að hægrismella einhvernsstaða og velja "New > Integer" og skrifa nglayout.initialpaint.delay og setja gildið á 0.
Svo á líka að vera hægt að setja network.http.max-connections á 32 network.http.max-connections-per-server á svona 6 sýnist 10+ ekki vera vinsælt hjá servereigendum network.http.request.max-start-delay á 0
Þetta ætti að virka fínt hjá þeim sem eru með hraðar tengingar.
|
|
<< Byrja < Fyrra 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>
|
|
Síða 9 af 24 |