|
Mánudagur, 17 Mars 2008 |
|
Við strákarnir höfum verið að tala um það að sumarið sé nú bara handan við hornið,
en það er aldeilis ekki.
Vaknaði í morgun og það var bara allt á kafi (á sænskann mælikvarða).
Í morgun á leiðinni í skólann mætti ég mönnum og konum sem voru að sanda
gangstéttirnar og búið að moka allt sem mokað verður. Tók mynd út um gluggann hjá mér.
Sænska krónan er annars 12,49 núna en var 9,2 31. ágúst.
Það er því ekki nema 36% dýrar fyrir mig að búa hér núna en var þegar ég kom.
Hver fær eiginlega þessi 36%?
Er annars að leggja lokahönd á heimaprófið núna, því verður skilað á morgun.
Haukur farinn til Portúgal og Jói til Húsavíkur.
|
|
Þriðjudagur, 11 Mars 2008 |
|
Þá er mesta pressan farin í bili. Var í prófi í Compressible Flow í dag . Það gekk bara ágætlega. Er annars búinn að vera með augnsýkingu síðustu 2 vikur þannig að ég hef ekki getað lært mikið. Núna er ég hinsvegar í heimaprófi í Turbulence Theory, heimaprófinu á að skila 24. mars en við fengum að vita að það yrði heimapróf á síðasta miðvikudag en ekki skriflegt próf á næsta föstudag. Haukur er búinn að kaupa sér flugmiða á næsta mánudag til Portúgal þannig að við ætlum að reyna að rusla þessu af fyrir þann tíma(ekki að fara að gerast). Var búinn að sjá framá góðar 2,5 vikur í páskafrí en hey. Rakst á þessa mynd á b2 í gær, svolítið skemmtilegt að síðasta dæmið í prófinu var einmitt að reikna fyrstu expansion á svona demant-lögun í 2d. {rokzoom}images/stories/blog/2008/blackbirdsr-71.jpg{/rokzoom}
Núna er afturámót Jericho byrjað aftur, þó fyrr hefði verið. Ég hef annars fengið það staðfest að það sé "ekkert mál" að týna handklæðinu.
|
|
<< Byrja < Fyrra 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>
|
|
Síða 7 af 24 |