Vika númer 2 hálfnuð, semsagt næstum 20% búið af síðustu önninni á þessu skólaári. Það var annars myndasýning hjá Berg um síðustu helgi. Bergur og Bjössi fóru í smá bíltúr um páskana og var farið í gegnum ferðasöguna þar. Eftir það var kíkt aðeins í bæinn.
Hér er annars búið að opna litla búð í næsta húsi, skutlaðist þangað áðan eftir æfingu og náði mér í mjólk. Gott þeir loka seint annars hefði bara verið kaffi í fyrramálið.
Næsta föstudag er planið að fara í grill hjá Sveinbirni og Ragga, þeir ætluðu að safna spreki í grillið í dag. Verð að komast að því hvernig það hefur gengið svo ég viti hvort ég eigi að koma með steik eða láta hamborgara duga.
Ég var annars að velta því fyrir mér hvort einhver viti hvað lagið heitir sem er spilað þegar hann hleypur alveg í lok myndbandsins?
Núna fer páskafríinu að ljúka, þarf að mæta í skólann á þriðjudaginn. Hef ekki fengið svona gott páskafrí síðan að ég held bara í 9. bekk í grunnskóla. Ekkert að læra og ekkert hægt að læra því ég kláraði prófin fyrir páskafrí. Ég og Páll erum annars farnir að nálgast kvart tonn sem þýðir að við þurfum að fara að taka okkur á. Erum búnir að vera í smá átaki núna síðustu daga en ég virðist afturámóti bara þyngjast á meðan Páll fleygir af sér kílóunum. Að öðru Þeir þurfa alltaf að vera að breyta tímanum hér og í nótt tapaði ég einum tíma, ég sá reyndar við þeim og svaf bara 2 tímum lengur en venjulega og græddi þannig 1 tíma.
Jói var að mæta á svæðið áðan og mætti beint í ræktina. Jói og Haukur áttu annars tvíburaafmæli um daginn 22. og 23. mars. Set hérna inn eitt lag fyrir þá frá árinu þeirra, 1984.
ps. Hvað er meira böggandi en að vera búinn að koma sér vel fyrir, að fara að horfa á þátt í tölvunni og sulla svo epplasafa á borðið?