Föstudagur, 28 Nóvember 2008
Ekki að þetta sé rétt lausn en allavegana fyrsta myndin sem tókst að fá í mastersverkefninu,
llookkssiinnss. Við (ég og Haukur) erum búnir að vera að hjakkast niðri í skóla að reyna að fá eitthvað
til að gerast en hefur ekkert gengið hingað til. Vonumst til þess að nú verði hugsanlega breyting á.
Á meðan við fáum flottar myndir þá erum við allavegana sáttir.

alt

 
Mánudagur, 24 Nóvember 2008
Var eitthvað að hanga á netinu í OpenFOAM tímanum í dag og rakst á þennan.
Þessi gaur er verkfræðingur og er í stuttu máli að fjalla um spurningar/verkefni sem hann hefur fengið
í atvinnuviðtölum.

Þetta minnti mig á það þegar ég og Haukur fórum í viðtal fyrir mastersverkefni
hjá fyrirtæki hér í Svíþjóð. Við vildum vinna verkefnið saman en samt vildu þeir fá
okkur í viðtal í sitthvoru lagi. Haukur mætti á undan í viðtalið og tók það tæpann klukkutíma,
það endaði síðan með því að hann fékk verkefni sem hann átti að leysa.
Verkefnið var það erfitt að ég veit ekki enn hvernig á að leysa það:D.
Ég var svo heppinn vera eftir hádegi í viðtalinu og þá voru þeir búnir að átta
sig á því að þetta "dæmi" hefði kannski verið aðeins of erfitt og fékk spurningu sem var
margfalt auðveldar. Þarf semsagt að fara að lesa mér til um hvernig maður á að snúa sér útúr
erfiðum atvinnuvitals-dæmum, jah annaðhvort það eða senda bara alltaf Hauk á undan.

Hér er annars skítkalt úti, meira að segja Páll er farinn að kvarta( kannski af því hann notar ekki úlpu).
Var að koma úr hraðbankanum, er að reyna að mjatla út peninginn minn á því frábæra gengi 17.3 áður
en íslenska krónan fuðrar upp.

Hef verið að hlusta á nýja diskinn með the killers, á eftir að hlusta meira á þá héðanífrá.
 
<< Byrja < Fyrra 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>

Síða 1 af 24